Væri ekki upplagt að fá upphitaðan göngustíg í kringum Víðisvöllinn eins og boðið er upp á Keflavíkurvelli. Flott lýðheilsumál sem gefur fólki aukið tækifæri til hreyfingar og heilsueflingar. Tek eftir því að mikið af eldri borgurum nýta völlinn í Keflavík, einkum yfir veturinn þegar er snjór og hálka 🙂
Bætt lýðheilsa, aukin heilsuefling íbúa á öllum aldri. Göngubraut sem allir get haft aðgang að, einkum yfir vetrarmánuði þegar snjór og hálka safnast á gönguleiðir.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation